|
Við bjóðum þig velkominn í leikskólann okkar Hraunborg. Hlutverk leikskólans er að búa börn sem best undir það líf
sem bíður þeirra í samfélagi sem tekur örum breytingum, samfélagi aukinnar tækni og framfara.
Einkunnarorð Hraunborgar eru: „Leikum og lærum". Markmið Hraunborgar er:
að hér starfi glaðir, virkir, ábyrgir, skapandi og gagnrýnir einstaklingar sem beri
virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum.
Hugmyndafræðin í Hraunborg byggist á lögum um leikskóla, Aðalnámskrá leikskóla og stefnu Leikskólasviðs Reykjavíkur.
Við störfum í anda heildtækrar skólastefnu með því að koma til móts við þarfir einstaklingsins og gefa honum tækifæri til
að vaxa og dafna á jafningjagrundvelli. Auk þessa tökum við mið af kenningum eftirtalinna fræðimanna: John Dewey,
Jean Piaget, Erik H. Erikson, Ingrid Pramling , Kami og Devries, Edgar Willems, Birgitta Knutsdottir Olofsson, Caroline Pratt og
Howard Gardner
Sjá Sjá nánar hér: Hugmyndafræði leikskólans
Lögð er áhersla á að börnin fái tækifæri til að nýta sem flesta hæfileika sína svo þau geti orðið skapandi, gagnrýnir og sjálfstæðir
einstaklingar. Tekið er mið af þörfum og þroska hvers einstaklings, börn læra á mismunandi hátt og þroskast mis hratt. Öll börn
læra best í leik og starfi með öðru börnum.
Sjá nánar hér: Leikurinn
Áhersla er lögð á dagleg samskipti við foreldra og miðlun upplýsinga með tilkynningum í fataherbergi og anddyri, fréttabréfum,
skólanámskrá og heimasíðu leikskólans.
Á vorin er boðið upp á kynningarfund fyrir foreldra þeirra barna sem hefja leikskólagöngu að hausti. Þá fá foreldrar að skoða
skólann og fá almennar upplýsingar um starfsemi hans. Þegar barn byrjar í leikskólanum fara foreldrar í viðtal hjá deildarstjóra
á deild barnsins. Þar skrifa þeir undir dvalarsamning og einnig er farið yfir upplýsingar er lúta að barninu. Auk þessa er farið
yfir helstu reglur leikskólans, hefðir, hvernig aðlögun verður háttað og þær væntingar sem foreldrar hafa til skólans. Á
aðlögunartímanum er lagður hornsteinn að öryggi og vellíðan barnsins og samstarfi heimilis og skóla. Til að það takist sem
best höfum við skipulagt aðlögunarferli.
Sjá Sjá nánar hér:
Aðlögun fyrir börn sem eru 4-5 tima
Aðlögun fyrir börn sem eru 6-7 tima
Aðlögun fyrir eldri börn sem eru 8-9 tíma
Aðlögun fyrir yngri börn sem eru 8-9 tíma
Aðlögun milli deilda
|