|
Hraunbergi 12, sími 557-9770
Leikskólinn er þriggja deilda, hér dvelja 64 börn samtímis.
Leikskólastjóri er Sigurborg Sveinbjörnsdóttir
Leikskólinn Hraunborg tók til starfa haustið 1984. Hann stendur við Hraunberg í Efra- Breiðholti í jaðri Elliðaárdals. Stutt er í skemmtilegar gönguleiðir og opin náttúrusvæði.
Í Hraunborg dveljast samtímis sextíu og fjögur börn á aldrinum eins til sex ára. Skólastarfið hefst kl. 07:30 og því lýkur kl. 17:00. Boðið er upp á fjögurra til níu tíma vistun.
Leikskólinn Hraunborg er rekinn af Leikskólasviði Reykjavíkur, sem starfa samkvæmt lögum um leikskóla frá árinu 1994 og reglugerð við þau lög frá 1995. Lögin kveða á um að leikskólinn sé fyrsta skólastigið í skólakerfinu og í samræmi við það var gefin út Aðalnámskrá leikskóla 1999 sem er stefnumótandi leiðarvísir um uppeldisstarf í leikskólum. Það er markmið og leiðarljós Leikskóla Reykjavíkur að í leikskólum borgarinnar sé unnið metnaðarfullt fagstarf þar sem hverju barni er mætt á eigin forsendum, byggt upp gott foreldrasamstarf með virkri þátttöku foreldra og að í leiskólunum starfi vel menntað og áhugasamt starfsfólk. Leikskólar Reykjavíkur leggja áherslu á sjálfstæði hvers leikskóla til að móta sína uppeldisstefnu í samráði við foreldra og börn. Stefnan skal byggjast á sameiginlegri hugmyndafræði starfsfólks og ytri aðstæðum hvers leikskóla. |