|
|
|
Í Hraunborg er haldið upp á afmæli barnanna. Barnið er í brennidepli þennan dag það fær kórónu og félagarnir syngja fyrir það. Barnið má koma með eina tegund af eftirtöldu góðgæti: köku hóflega skreytta með sælgæti, ís / íspinna, frostpinna, snakk eða ávexti. Foreldrar hafið samráð við starfsmenn deildarinnar hvað komið verður með. Ef tvö börn eða fleiri eiga afmæli sama dag taka foreldrar og starfsmenn sameiginlega ákvörðum um með hvaða hætti haldið verður upp á þau. Ef barnið ætlar að bjóða leikskólabörnum heim er ekki heimilt að skilja eftir boðskort í hólfum einstakra barna því að það veldur sorg og leiða hjá þeim börnum sem ekki fá boðskort.
|
|
Leikfangadagur er fyrsta föstudag hvers mánaðar nema á Þrastalandi. Þar er ekki leikfangadagur. Leyfilegt er að koma með tvö til þrjú leikföng. Ekki má koma með stríðsleikföng, hjól, hjólaskauta, línuskauta, hjólabretti og stýrissleða.
Leikföng, sem barnið kemur með, eru á ábyrgð foreldra, ekki starfsmanna. |
|
|
|
|
|
|